Fara í efni

Rotþróarlosun 2025

19.02.2025

Skagafjörður mun standa fyrir losun rotþróa á eftirfarandi svæðum í sumar: Hegranes og Blönduhlíð að Fljótum.

Eigendur rotþróa eru vinsamlegast beðnir um að tryggja aðgengi losunarbíls að rotþróm og að þær séu auðfinnanlegar og opnanlegar.

Ef eigendur hafa athugasemdir fram að færa og/eða vilja afþakka þjónustuna, vinsamlega komið þeim á framfæri hjá Ráðhúsinu í síma 455-6000 eða á netfangið gunnarpall@skagafjordur.is, fyrir 15. mars næstkomandi.