Fara í efni

Rotþróarlosun

06.09.2014

Sveitarfélagið Skagafjörður mun standa fyrir losun rotþróa á næstkomandi vikum. Svæðin sem losunin nær til eru Reykjaströnd, Skörð, Skagi og Fljót. Eigendur fasteigna eru vinsamlegast beðnir um að tryggja aðgengi losunarbíls að rotþróm og að þær séu auðsjáanlegar og opnanlegar.

Tilkynningum um nýjar roþrær og athugasemdum skal komið á framfæri á skrifstofu sveitarfélagsins í síma 455-6000 eða í netfangið ipi@skagafjordur.is

Samþykkt um fráveitu í Sveitarfélaginu Skagafirði.
Hér má finna upplýsingarit Umhverfisstofnunar um rotþrær og siturlagnir.

Veitu- og framkvæmdasvið