Fara í efni

Rotþrær í dreifbýli þjónustaðar á næstu vikum

31.08.2013

Sveitarfélagið Skagafjörður mun standa fyrir losun rotþróa á næstu vikum, á svæði frá og með Hegranesi að Fljótum.
Eigendur rotþróa eru vinsamlegast beðnir um að tryggja aðgengi losunarbíls að rotþróm og að þær séu auðfinnanlegar og opnanlegar.
Ef eigendur hafa athugasemdir fram að færa vinsamlegast komið þeim á framfæri á skrifstofu sveitarfélagsins í síma 455 6000 eða í netfangið ipi@skagafjordur.is.