Fara í efni

Rökkurganga í Glaumbæ og aðventuhátíðir um helgina

06.12.2013

Laugardaginn 7. desember verða jólatónleikar Tónlistarskóla Skagafjarðar í Höfðaborg Hofsósi kl 13 og aðventuhátíðir í Hofsóskirkju og á dvalarheimilinu á Sauðárkróki. Á sunnudaginn 8. desember verða aðventuhátíðir á Löngumýri og í Barðskirkju en þar verður helgileikur og jólasöngvar. Jóla- og handverksmarkaður verður í grunnskólanum á Hólum kl 14 - 17 með kaffihúsastemmingu og jólabingó leikskólans á Hofsósi í Höfðaborg kl 14. Byggðasafnið í Glaumbæ verður opið á sunnudaginn milli kl 12 og 17 og boðið til rökkurgöngu í gamla bænum kl 15:30 einnig verður opið í Áskaffi á sama tíma. Margt fleira er í boði og því um að gera að kíkja á jóladagskrána.