Rithöfundakvöld í bókasafninu
12.11.2025
Hið árlega rithöfundakvöld verður haldið í Safnahúsinu 13. nóvember nk. og hefst klukkan 20:00. Viðburðurinn fer fram á efri hæð hússins við Faxatorg. Fimm höfundar mæta til leiks að þessu sinni og kynna sig og nýútkomnar bækur sínar.
Gestir að þessu sinni verða þau Valdimar Gunnarsson með Utanveltumaður, Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir með Piparmeyjar - Fröken Thora og saga einhleypra kvenna á Íslandi, Skúli Thoroddsen með Dorgað í djúpi hugans, Steindór Ívarsson með Herranótt og Viktor Arnar Ingólfsson með Sumarið við brúna.
Að vanda verður boðið upp á jólate og konfekt. Starfsmenn lofa notalegri kvöldstund með gríðarlega áhugaverðu og fjölbreyttu efni.
Sjáumst í Safnahúsinu á morgun.