Fara í efni

Rithöfundakvöld á bókasafninu 19. nóvember nk.

11.11.2026

Hið árlega Rithöfundakvöld verður haldið fimmtudaginn 19. nóvember kl. 20:00 á bókasafninu á Sauðárkróki, á 3. hæð.

Að þessu sinni mæta fimm rithöfundar og kynna nýútkomnar bækur sínar ásamt því að lesa valda kafla fyrir gesti. Benný Sif Ísleifsdóttir kynnir Vetrarþresti, Bjarni Harðarson Aleinn og mállaus, Gerður Kristný Mikadó, Guðný Hallgrímsdóttir Dauðadæmd og Kristján Eiríksson Sögu Drangeyjar.

Rithöfundakvöldið er kærkomið tækifæri fyrir bókaunnendur til að hlýða á höfunda segja frá nýjustu bókum sínum og njóta notalegrar bókmenntastundar í góðum félagsskap. Jólalegt verður um að litast og í hléi verður boðið upp á jólate og konfekt.

Sveitarfélagið hvetur íbúa til þess að kíkja á þennan viðburð og eiga skemmtilegt spjall við rithöfunda kvöldsins.