Fara í efni

Rekstraraðili fyrir félagsheimilið Ljósheimar

25.09.2026

Skagafjörður auglýsir eftir umsóknum frá aðilum sem vilja taka að sér rekstur félagsheimilisins Ljósheima allt að 10 ára, með gagnkvæmum uppsagnarákvæðum.

Félagsheimilið Ljósheimar var byggt árið 1985 og er 343,4 m². Í húsinu er rúmgóður salur, vel útbúið eldhús, góð salernisaðstaða og herbergi á efri hæð. Félagsheimilið er nýtt fyrir samkomuhald af ýmsum toga, s.s. fundi, veislur, markaði og jafnvel ættarmót, en stærð lóðar er um 7000 m².

Leigugreiðsla tekur mið af álögðum fasteignasköttum, skyldutryggingum og viðhaldskostnaði sem nemur 0,85% af brunabótamati fasteignarinnar. Rekstraraðila ber jafnframt að standa straum af greiðslu rafmagns, hita og annarra trygginga.

Rekstrarkostnaður

  • Brunatryggingar húseigna: 168.495 kr.
  • Húseigendatryggingar: 27.429 kr.
  • Fasteignaskattur: 608.250 kr.
  • Lóðarleiga: 32.530 kr.
  • Viðhaldskostnaður (0,85% af brunabótamati): 1.639.650 kr.

Samtals: 2.47.6.354 kr.

Stígi engin áhugasöm fram eða ekki náist samningar við umsækjendur fer húsið í söluferli.

Með umsókn skulu fylgja upplýsingar um fyrirhugaða starfsemi, bakgrunn og reynslu umsækjanda.

Umsóknarfrestur er til og með 12. október 2026 og skal umsókn skila rafrænt á netfangið skagafjordur@skagafjordur.is eða í Ráðhúsi á Sauðárkróki, Skagfirðingabraut 21, 550 Sauðárkróki.