Rekstraraðili fyrir félagsheimilið í Hegranesi
Sveitarfélagið Skagafjörður auglýsir eftir umsóknum frá aðilum sem vilja taka að sér rekstur félagsheimilisins í Hegranesi, F2142322, til allt að 10 ára, með gagnkvæmum uppsagnarákvæðum.
Félagsheimilið í Hegranesi er byggt árið 1969 og er 278 m2 að grunnfleti. Húsið skiptist í 209 m2 hæð og 69 m2 kjallara. Í anddyri eru tvö salerni ásamt fatahengi. Samkomusalur sem tekur um 110 manns í sæti, ásamt senu. Þá er ágætis eldhús í húsinu. Í kjallara eru skrifstofa og geymslur. Rafmagnstengi fyrir tjaldstæði er einnig í kjallara.
Í húsinu hefur verið rekin ferðaþjónustutengd starfsemi, auk hefðbundinnar starfsemi félagsheimils, s.s. veislur, þorrablót og aðrir mannfagnaðir. Umsækjanda er skylt að reka húsið áfram með sambærilegum hætti. Miðað er við að nýr aðili taki við rekstri hússins 1. október 2025.
Leigugreiðsla tekur mið af álögðum fasteignasköttum, skyldutryggingum og viðhaldskostnaði sem nemur 0,85% af brunabótamati fasteignarinnar. Rekstraraðila ber jafnframt að standa straum af greiðslu rafmagns, hita og annarra trygginga.
Óskað er eftir að með umsókn fylgi upplýsingar um bakgrunn og reynslu umsækjanda.
Umsóknarfrestur er til 10. ágúst nk. og skal skila umsóknum á netfangið skagafjordur@skagafjordur.is eða í Ráðhúsið á Sauðárkróki, Skagfirðingabraut 21, 550 Sauðárkróki.