Fara í efni

Reikningar frá sveitarfélaginu í Íbúagáttinni

20.04.2020

Nú er hægt að nálgast reikninga frá sveitarfélaginu rafrænt í íbúagátt sveitarfélagsins. Íbúar og fyrirtæki geta nú með auðveldum hætti séð alla sína reikninga á einum stað. Meðal reikninga sem hægt er að sjá eru reikningar vegna fasteignagjalda, leikskólagjalda og hitaveitu. Er þetta liður í að auka þjónustu við íbúa og fyrirtæki í Skagafirði þar sem hægt er að nálgast þessar upplýsingar eftir eigin hentugleika hvenær sólarhringsins sem er.
Hægt er að fara inn á Íbúagáttina hér eða á heimasíðu sveitarfélagsins.