Fara í efni

Reglur um sóttkví gilda líka í sveitinni

26.03.2020
Haganesvík á haustmánuðum 2019

Að gefnu tilefni vekja lögreglustjórinn og almannavarnanefndir á Norðurlandi vestra athygli á því að reglur um sóttkví gilda líka um þá sem kjósa að dvelja í sumarhúsi á meðan á sóttkví stendur.

  • Einstaklingar í sóttkví mega ekki fara út fyrir sumarhúsið nema brýna nauðsyn beri til.
  • Einstaklingar í sóttkví mega ekki fara sjálfir eftir aðföngum, þ.á.m. í matvöruverslun.
  • Einstaklingar í sóttkví mega ekki fara sjálfir með sorp á móttökustöðvar sveitarfélaga.
  • Einstaklingar í sóttkví mega fara í göngutúra eða bíltúra, en gæta þarf að því að halda reglur um fjarlægð frá örðum.

Sjá auglýsingu lögreglustjóra á Norðurlandi vestra og almannavarnanefnda á Norðurlandi vestra: