Rannsóknarsetur um íslenska hestinn verður á Hólum
Við setningu Landsmóts hestamanna á Hólum sem fram fór í gær, fimmtudaginn 9. júlí, undirrituðu Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Hólmfríður Sveinsdóttir, forseti Háskóla Íslands á Hólum, og Magnús Barðdal, sveitarstjóri Skagafjarðar, viljayfirlýsingu um stofnun rannsóknarseturs um íslenska hestinn á Hólum í Hjaltadal.
Rannsóknasetrið verður hluti af Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands sem samkvæmt stofnsamningi nýrrar háskólasamstæðu Háskóla Íslands mun flytjast til HÍ á Hólum. Með stofnun þess verður rannsóknasetrið það fjórtánda í röðinni. Jafnframt er stefnt að því að innan fárra ára starfi tveir fastir starfsmenn við hvert rannsóknasetur víða um land.
Viðstödd undirritun viljayfirlýsingarinnar voru Sigrún Brynja Einarsdóttir, ráðuneytisstjóri menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, Sæunn Stefánsdóttir, forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands, Víkingur Gunnarsson, deildarforseti Hestafræðideildar Háskóla Íslands á Hólum, Silvía Sigurbjörnsdóttir, formaður Félags tamningamanna, Ólafur Þórisson, formaður Félags hrossabænda, Elvar E. Einarsson, formaður hestamannafélagsins Skagfirðings, og Linda Björk Gunnlaugsdóttir, formaður Landssambands hestamannafélaga.
Lesa má nánar um þennan áfanga hér.