Fara í efni

Ragnar Helgason ráðinn í starf sérfræðings á fjölskyldusviði

13.03.2023
Ragnar Helgason

Ragnar Helgason hefur verið ráðinn í starf sérfræðings á fjölskyldusviði. Ragnar tekur við starfinu af Erlu Hrund Þórarinsdóttur sem lét nýlega af störfum. Fjármálasérfræðingur starfar á fjölskyldusviði og kemur að þjónustu við allar þrjár fagstoðir sviðsins; félagsþjónustu, frístundaþjónustu og fræðsluþjónustu. Starfið felur m.a. í sér gerð fjárhagsáætlana og fjárhagsstýringu málaflokka sviðsins í samráði við sviðsstjóra.

Ragnar leggur stund á BS nám í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst samhliða vinnu. Undanfarin ár hefur Ragnar starfað í Arion banka. Nú síðast í starfi sem fjármálaráðgjafi einstaklinga en einnig hefur hann starfað þar sem fyrirtækjaráðgjafi og viðskiptastjóri. Í störfum sínum fyrir Arion banka sinnti Ragnar ýmis konar fjármálagreiningum og þekkir hann því vel til fjárhagsáætlana, rekstraráætlana o.s.frv. Ragnar hefur að auki mikla reynslu í úrvinnslu tölulegra gagna og framsetningu þeirra.

Um leið og við þökkum Erlu Hrund fyrir hennar góðu störf undanfarin ár bjóðum við Ragnar Helgason hjartanlega velkominn til starfa og óskum honum velfarnaðar í sínum störfum.