Fara í efni

Ragnar Helgason hefur verið ráðinn í starf verkefnastjóra ferða-, menningar- og viðburðaverkefna

19.03.2026

Ragnar Helgason hefur verið ráðinn í starf ferða-, menningar- og viðburðaverkefna. Alls bárust 12 umsóknir um starfið, þar af dró einn umsókn sína til baka. Verkefnastjóri er starfsmaður atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar og mun hafa umsjón með verkefnum á sviði ferða- og menningarmála ásamt umsjón með skipulagningu og framkvæmd viðburða á vegum sveitarfélagsins og ýmsum öðrum menningarviðburðum. Auk þess verður verkefnastjóri með umsjón með komum skemmtiferðaskipa, félagsheimilum og fleira.

Ragnar hefur yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af opinberri stjórnsýslu. Hann starfaði nú síðast sem fjármálasérfræðingur hjá Háskólanum á Hólum en þar áður starfaði hann hjá Skagafirði sem sérfræðingur á fjölskyldusviði og var m.a. starfsmaður félags- og tómstundanefndar hjá sveitarfélaginu. Þá hefur hann einnig gegnt formennsku í atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Skagafjarðar á kjörtímabilinu. Ragnar hefur ýmiss konar reynslu af verkefna- og viðburðahaldi sem og vefumsjón úr fyrri störfum og sem fyrirtækjaeigandi.

Ragnar mun hefja störf hjá sveitarfélaginu í apríl og bjóðum við hann hjartanlega velkominn til starfa og óskum honum velfarnaðar í sínum störfum.