Fara í efni

Ráðherra og rektor Háskóla Íslands sækja Skagafjörð heim

29.06.2026

Ánægjulegt er að greina frá því að Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og dr. Silja Bára R. Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands komu í heimsókn í Skagafjörð ásamt föruneyti í dag, mánudaginn 29. júní.

Tilefni heimsóknarinnar var stofnun háskólasamstæðu, en Háskólinn á Hólum og Háskóli Íslands sameinast formlega undir merkjum Háskólasamstæðu Háskóla Íslands á Hólum frá og með 1. júlí nk.

Áður en haldið var á Hóla kom ráðherra við á Sauðárkróki og heimsótti starfsemina á Faxatorgi. Hann átti síðan góðan fund með Magnúsi Barðdal sveitarstjóra, fulltrúum sveitarstjórnar og Hólmfríði Sveinsdóttur rektor Háskólans á Hólum. Sveitarstjóri lagði áherslu á mikilvægi ráðuneytisins í fjármögnun á nýju menningarhúsi á Sauðárkróki og jákvæðum áhrifum sem það kann að hafa á samfélagið í Skagafirði. Jafnframt var rætt um tækifærin sem felast í eflingu háskólanáms í sveitarfélaginu, til dæmis uppbyggingu á þekkingargörðum sem skapa jarðveg fyrir ný og öflug fyrirtæki sem starfa í nábýli við háskólann.

Skagafjörður þakkar fyrir ánægjulega og góða heimsókn og hlakkar til áframhaldandi viðræðna um mikilvæg málefni sem snerta sveitarfélagið.