Fara í efni

Prjónakaffi í Húsi frítímans á miðvikudögum

16.09.2014

Vertu velkomin í  prjónakaffi í Húsi frítímans

 Á hverjum miðvikudegi frá kl. 19:00 til  22:00  er prjónakaffi í Húsi frítímans á Sauðárkróki.

Húsið er opið öllum sem áhuga hafa á handverki, s.s. prjóna, sauma, hekla, vefa svo eitthvað sé nefnt.

Hver og einn kemur þegar hann vill og  fer þegar hann vill.

Alltaf eru einhverjir sem kunna það sem þú kannt ekki og eru tilbúnir til að aðstoða.

Ef þig hefur lengi langað að læra að hekla eða prjóna eða vantar bara smá aðstoð er bara að mæta.

 

Hlökkum til að sjá þig.