Fara í efni

Öskubuska á Hólum

19.03.2015
Mynd GaV

Nemendur Grunnskólans austan Vatna verða með árshátíð sína í grunnskólanum á Hólum föstudaginn 20. mars og hefst hún kl 20. Það er leikritið Öskubuska sem verður sett á svið og taka allir nemendur skólans þátt ásamt elstu börnum leikskólans Tröllaborgar.

Miðaverð á sýninguna er 1.800 kr og frítt fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri. Innifalið í verðinu er kaffihlaðborð, að sýningu lokinni,  sem foreldrafélagið sér um.

Nemendur og starfsfólk skólans bjóða alla velkomna á sýninguna.