Fara í efni

Óskað er eftir fólki á útkallalista velferðarþjónustu

26.03.2020

Í ljósi atburða síðustu daga og vikna er varðar heimsfaraldur Covid-19 er ljóst að útbreiðsla veirunnar gæti orðið til þess að valda erfiðleikum í veitingu þjónustu og skapað álag á vissum starfstöðvum. Við slíkar aðstæður er brýnt að tryggja lögbundna þjónustu og aðstoð til viðkvæmustu hópanna. Því hefur Félags- og barnamálaráðherra í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, unnið að því að koma á fót bakvarðasveit í velferðarþjónustu þar sem einstaklingar geta skráð sig á lista hafi þeir tök á að ráða sig tímabundið, hvort sem er í fullt starf eða tímavinnu.

Óskað er eftir fólki sem getur starfað í þjónustu við fatlað fólk, aldraða, heimilislausa, börn með sértækar stuðningsþarfir, barnavernd og fjárhagstoð. Reynsla af störfum í velferðarþjónustu er kostur en ekki skilyrði. Hæfniskröfur taka mið af viðkomandi starfi.

Útbúið hefur verið rafrænt skráningarform fyrir þá sem eru reiðubúnir að skrá sig í bakvarðasveitina. Laun taka mið af kjarasamningi/stofnanasamningi viðkomandi stéttarfélags á þeirri starfstöð sem um ræðir hverju sinni.

Viljum við hvetja fólk sem hefur tök á að skrá sig í bakvarðasveitina.