Fara í efni

Óskað eftir tilnefningum fyrir Samfélagsverðlaun Skagafjarðar 2026

20.02.2026

Samfélagsverðlaun Skagafjarðar verða veitt í ellefta sinn á setningu Sæluviku í Safnahúsinu á Sauðárkróki sunnudaginn 12. apríl nk. 

Skagafjörður óskar eftir tilnefningum fyrir Samfélagsverðlaun Skagafjarðar, en verðlaunin eru árlega veitt einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í Skagafirði sem þykja standa sig afburða vel í að efla skagfirskt samfélag.

Senda inn tilnefningu

Frestur til þess að senda inn tilnefningar er til og með 22. mars nk.