Óskað eftir nýjum eigendum að Maddömukoti
18.08.2026
Sveitarfélagið óskar eftir áhugasömum aðilum til að taka við Maddömukoti í núverandi ástandi án endurgjalds, gegn því skilyrði að húsið verði flutt á nýjan stað og gert upp í samræmi við kröfur Minjastofnunar Íslands.
Húsið er aldursfriðað samkvæmt lögum um menningarminjar nr. 80/2012, sem þýðir að hvorki má rífa það né breyta á nokkurn hátt án samþykkis Minjastofnunar Íslands.
Afhending hússins fer fram þegar samkomulag hefur náðst milli aðila, þó eigi síðar en 15. desember 2026.
Áhugasamir eru beðnir um að senda inn umsókn fyrir 31. október 2026 á skagafjordur@skagafjordur.is.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Barðdal sveitarstjóri á netfanginu magnus.barddal@skagafjordur.is.