Fara í efni

Orðsending til kattaeigenda

09.05.2023
Mynd af netinu

Nú er sá árstími þar sem vorboðarnir ljúfu, fuglarnir, búa sér hreiður og reyna að koma ungum sínum upp. Því miður lenda margir ungar í kattarkjafti og komast aldrei á flug. Samkvæmt samþykkt um hunda- og kattahald í sveitarfélaginu Skagafirði ber kattareigendum að taka tillit til fuglalífs á varptíma og eftir atvikum takmarka útiveru þeirra, m.a. að næturlagi. Kettir skulu vera örmerktir og ávallt bera ól um hálsinn. Á ólinni skal vera plata, sem í er grafið skráningarnúmer kattarins.

Ef eigandi eða umráðamaður hunds eða kattar vanrækir skyldur sínar eða brýtur ítrekað gegn ákvæðum samþykktar þessarar eða öðrum reglum sem gilda um hunda- og kattahald getur sveitarstjórn afturkallað leyfi hans til hunda- eða kattahalds.

Biðlað er til kattareigenda að virða reglur þessar og sjá til þess að kettir þeirra komist ekki að ungunum.

Samþykkt um hunda- og kattahald í Sveitarfélaginu Skagafirði