Fara í efni

Opnunartími sundlauga og lokun hluta Skagfirðingabrautar um helgina

01.08.2023

Nú er verslunarmannahelgin framundan og unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Sauðárkróki um helgina. Athygli er vakin á breyttum opnunartíma í Sundlaug Sauðárkróks á laugardegi og sunnudegi. Keppt verður í sundi á laugardagsmorgninum og opnar laugin kl 13:00 þann daginn og opið verður lengur á sunnudeginum eða til kl 20:00. Opnunartími í Varmahlíðarlaug lengist og er opið til kl 18:00 á laugardegi og sunnudegi. Opið verður í Sólgarðalaug á mánudeginum en opnunartími í sundlauginni á Hofsósi er sá sami frá 9:00 til 21:00.
Við viljum einnig vekja athygli á að hluta Skagfirðingabrautar verður lokað, frá Öldustíg að innkeyrslu við bílastæði Árskóla, föstudag, laugardag og sunnudag, 4.-6. ágúst, milli kl 8:00 og 18:00 vegna unglingalandsmótsins.