Fara í efni

Opnunartímar sundlauga um páskana

10.04.2017
Sundlaugin á Hofsósi

Nú líður að páskum og nemendur grunnskólanna komnir í páskafrí og margir á ferð og flugi og vinsælt að fara í sund. Opnunartími sundlaugarinnar á Sauðárkróki er kl 10-17:30 alla páskahelgina, á Hofsósi  kl 12-17:30 og í Varmahlíð kl 10-15 en lokað þar á föstudaginn langa og páskadag. 11. og 12. apríl er opið í Varmahlíð kl 16-21.

Í næstu viku er sumardagurinn fyrsti fimmtudaginn 20. apríl og þá er opið á Sauðárkróki kl 10-16, á Hofsósi kl 7-13:30 og 17-20 og í Varmahlíð kl 10-15.

Opnunartíma sundlauganna má alltaf nálgast á heimasíðunni.