Fara í efni

Opnunartímar sundlauga í Skagafirði um helgina

19.02.2015
Sundlaug Sauðárkróks

Í tilefni vetrarhátíðarinnar í Tindastóli nú um helgina verður sundlaugin á Sauðárkróki opin lengur á laugardaginn eða til kl 18. Venjulegur opnunartími er á föstudeginum og sunnudeginum.

Sundlaugin í Varmahlíð er opin í dag, fimmtudag, milli kl 16 og 21 og lokuð á morgun föstudag vegna vetrarfrís í skólanum. Hún er opin á laugardaginn milli kl 10 og 15 og lokuð á sunnudaginn.

Sundlaugin í Hofsósi er opin eins og venjulega en hér má nálgast opnunartíma sundlauganna.

Þar sem vetrarfrí eru í grunnskólunum fellur allt skólasund niður og því upplagt að nota sér það fyrir þá sem það vilja.