Fara í efni

Opnunartímar íþróttamannvirkja um jól og áramót

21.12.2016
Sundlaugin á Hofsósi

Nú styttist í jólin og margir sem nota frídagana yfir hátíðarnar til að skreppa í sund eða heita pottinn og því gott að vita opnunartíma sundlauganna.

Venjulegur opnunartími er á Þorláksmessu, opið til hádegis í sundlaugunum á Sauðárkróki og Hofsósi á aðfangadag en lokað í Varmahlíð. Allar laugarnar eru lokaðar á jóladag og annan í jólum og hefðbundin opnun milli jóla og nýárs. Á gamlársdag er opið til hádegis á Sauðárkróki og Hofsósi en lokað í Varmahlíð og á nýársdag eru allar laugarnar lokaðar.

Íþróttahúsið á Sauðárkróki er lokað 23. - 26. des og 31. des - 1. jan.

Starfsfólk íþróttamannvirkja sveitarfélagsins óskar öllum gestum sínum nær og fjær, gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Opnunartíma sundlauga sveitarfélagsins má finna hér á heimasíðunni.