Fara í efni

Opnunartímar Byggðasafnsins í sumar

11.05.2015
Mynd Byggðasafnið

Í maí er gestavakt á gamla bænum í Glaumbæ og Áshúsi milli kl. 10 og kl. 16 alla daga til 19. maí. Frá 20. maí til 20. september 2015 verður opið alla daga milli kl. 9 og kl. 18. Áskaffi er opið á sama tíma, nema 1.-19. maí en þá er kaffistofan opin frá kl. 11 til kl. 16. Sýningar og upplýsingaver í Minjahúsinu verða opin milli kl. 12 og kl. 19 alla daga frá 1. júní til 31. ágúst.