Fara í efni

Opnir íbúafundir um sorpmál í dreifbýli

08.04.2019
Skagafjörður

Þrír opnir íbúafundir verða haldnir á vegum umhverfis- og samgöngunefndar um sorpmál í dreifbýli Skagafjarðar í dag og á morgun.

Farið verður yfir stöðu sorpmála í dag og skoðaðar mögulegar breyttar útfærslur á sorphirðu í dreifbýli.

Mánudag 8. apríl kl 20 í Miðgarði

Þriðjudag 9. apríl kl 17 í Höfðaborg

Þriðjudag 9. apríl kl 20 í Ketilási

Íbúar eru hvattir til að fjölmenna á fundina á sínu svæði.