Fara í efni

Opnir íbúafundir

21.11.2018
Kennimerki Sveitarfélagsins Skagafjarðar

Boðað er til opinna íbúafunda í Sveitarfélaginu Skagafirði þar sem umfjöllunarefnið er fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2019 og hugmyndir íbúa um áhersluatriði þeirra í þjónustu, framkvæmdum og ábyrgri fjármálastefnu.

Fundirnir verða haldnir sem hér segir:

Miðvikudagur 28. nóvember

  • Kl. 17 Undir byrðunni, Hólum í Hjaltadal
  • Kl. 20 Menningarhúsið Miðgarður, Varmahlíð

Fimmtudagur 29. nóvember

  • Kl. 17 Höfðaborg, Hofsósi
  • Kl. 20 Mælifell, Sauðárkróki