Fara í efni

Opnað verður fyrir umsóknir um aukaúthlutun styrkja á sviði menningarstarfs og skapandi greina á allra næstu dögum

21.04.2020

Tilkynnt var í dag á vef Stjórnarráðsins að opnað verði fyrir umsóknir um aukaúthlutun styrkja á sviði menningarstarfs og skapandi greina á allra næstu dögum. Stuðningurinn byggir á þingsályktun um fjárfestingarátak stjórnvalda til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldursins og nemur alls 500 milljónum kr.

Framlögin munu skiptast sem hér segir:
Kvikmyndasjóður 120 milljónir kr.
Starfsemi atvinnuleikhópa 99 milljónir kr.
Tónlistarsjóður 86 milljónir kr.
Myndlistarsjóður 57 milljónir kr.
Hönnunarsjóður, 50 milljónir kr.
Bókmenntasjóður, 38 milljónir kr.

Þá verður 50 milljónum kr. varið til skráningar menningararfs.

Skilyrði fyrir styrkveitingunum nú verða eftirfarandi:

  • Verkefnið hefjist eigi síðar en 1. september 2020 og verði lokið fyrir 1. apríl 2021.
  • Um sé að ræða átaksverkefni sem styðji við fjölbreytta starfsemi á sviði lista og menningar með áherslu á sköpun og virka þátttöku listamanna í menningarlífi landsmanna.
  • Verkefnið uppfylli grunnmarkmið fjárfestingarátaksins um að styðja við eftirspurn og atvinnu til skamms tíma með arðbærum verkefnum.
  • Sýnt sé fram á gildi verkefnis og mikilvægi þess fyrir landsmenn.
  • Styrkveiting sé til undirbúnings, þróunar og framkvæmd verkefnis.
  • Ítarlegar upplýsingar liggi fyrir um verkefnið, auk tímaáætlunar þess.
  • Ekki verða veittir styrkir til þeirra sem njóta listamannalauna í 6 mánuði eða meira árið 2020.


Sótt er um styrkina á vef viðkomandi sjóðs. 

Nánari upplýsingar má nálgast á vef Stjórnarráðsins.