Fara í efni

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Matvælasjóð

29.03.2022

Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Þetta er í þriðja sinn sem sjóðurinn auglýsir úthlutun og er heildarúthlutunarfé sjóðsins 593 milljónir króna. Markmið sjóðsins er að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna og eru veittir styrkir í 4 styrkjaflokkum: Báru, Keldu, Afurð og Fjársjóði. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu um land allt. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn fylgir eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þessum tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni og rannsóknir einstaklinga og lögaðila.

Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Stjórnarráðsins.