Fara í efni

Opið kall til listafólks á Norðurlandi vestra

17.03.2026

Undirbúningur Skúnaskralls, barnamenningarhátíðar á Norðurlandi vestra, er hafinn.

Hátíðin mun fara fram dagana 21. október til 4. nóvember 2026 og þema hátíðarinnar er „Öll saman“.

Þemað hefur víða skírskotun til íbúa landshlutans, en á hátíðinni verður lögð áhersla á menningartengda samvinnu og samveru og að þátttaka standi öllum börnum, ungmennum og fjölskyldum þeirra til boða.

Óskað er eftir samstarfi við listafólk búsett í landshlutanum til að bjóða upp á listar- og menningarviðburði og/eða vinnustofur fyrir börn og ungmenni á hátíðinni.

Mikilvægt er að þau sem sækja um hafi reynslu af því að vinna með börnum og ungmennum og fyrir þennan aldurshóp.

Umsækjendur eru beðnir um að senda inn vel formaða hugmynd að verkefni, þar sem tilgreina skal:

  • Aldur þátttakenda
  • Staðsetningu/staðsetningar
  • Fjölda barna/ungmenna í hverju verkefni
  • Lengd verkefnis
  • Allt annað sem skiptir verkefnið máli.

Miðað er við taxta Listar fyrir alla.

Tekið skal fram að við val á verkefnum verður tekið tillit til aldursdreifingar, dreifingar milli sveitarfélaga og að framboð listgreina verði sem fjölbreyttast. Fjöldi verkefna sem valin verða, ræðst af endanlegu fjármagni sem hátíðin fær.

Umsóknum skal skila til Berglindar Björnsdóttur hjá SSNV eigi síðar en 1. júní. Berglind svarar einnig öllum fyrirspurnum varðandi verkefnið; berglind@ssnv.is.