Fara í efni

Opið hús í Iðjunni 3. desember

01.12.2015

Í tilefni af Alþjóðadegi fatlaðs fólks þann 3. desember verður opið hús í Iðjunni í Aðalgötu 21 milli kl 10 og 15.  Að venju verður ýmislegt handverk á boðstólum og jólate iðjusamra ásamt meðlæti. Um kl 14 mæta góðir gestir og skemmta viðstöddum og vonast iðjusamir til að sjá sem flesta.