Fara í efni

Opið hús í Iðjunni 3. desember

03.12.2013

Í tilefni af Alþjóðadegi fatlaðs fólks 3. des verður opið hús í Iðjunni Aðalgötu 21 kl 10 - 15. Sölusýning verður á verkum notenda Iðjunnar og rennur allur ágóði sölunnar til vinnustofunnar. Lifandi tónlist mun hljóma milli kl 14 og 14:30 og boðið upp á jólate iðjusamra ásamt meðlæti.