Fara í efni

Nýtt hljóðkerfi í Íþróttahúsið á Sauðárkróki

06.01.2023
Þorvaldur Gröndal frístundastjóri ásamt Adam Smára Hermannssyni deildarstjóra Exton Akureyri

Nýtt hljóðkerfi hefur verið sett upp í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Mun nýja kerfið leysa af hólmi gamla kerfið sem var komið á tíma. Nýja kerfið er mun öflugra en kerfið sem fyrir var og mun nýtast vel við íþróttakennslu í húsinu, dreifir hljóðinu betur um salinn og er mun einfaldara í notkun. Þá mun kerfið án efa koma sér vel á heimaleikjum í Síkinu en Tindastóll á einmitt heimaleik í kvöld í Subwaydeildinni á móti Keflavík. Það var Exton Akureyri sem sá um að setja upp nýja hljóðkerfið.