Fara í efni

Nýtt geymslusvæði á Hofsósi

09.09.2016
Hofsós

Sveitarfélagið Skagafjörður hefur opnað afgirt geymslusvæði á Hofsósi, norðan áhaldahúss. Þar geta menn leigt pláss fyrir tæki og tól sem þarfnast geymslu. Nánari upplýsingar um tilhögun og geymslugjald veitir Birgir Freyr Þorleifsson í síma 863-3327.