Nýtt fyrirkomulag varðandi vetrarþjónustu á vegum Skagafjarðar
17.02.2025
Við vekjum athygli á því að nýtt fyrirkomulag hefur tekið gildi varðandi vetrarþjónustu á vegum Skagafjarðar, þ.e. nú skal hafa samband við Þjónustumiðstöð eða landbúnaðar- og umhverfisfulltrúa Skagafjarðar, Kára Gunnarsson, til þess að óska eftir þjónustu í stað þess að hafa samband við þá tengiliði sem áður tóku við pöntunum.
Svæðin skiptast á eftirfarandi hátt:
Þjónustumiðstöð – Sími 660 4631
Sauðárkrókur
Reykjaströnd (2)
Skíðasvæði (2)
Hofsós
Hólar
Landbúnaðar- og umhverfisfulltrúi – Sími 659 3970
Svæði 1
Svæði 3 + Varmahlíð
Svæði 4 + Steinsstaðir
Svæði 5
Svæði 6
Svæði 7
Svæði 8
Skiptingar á svæðum má sjá á meðfylgjandi mynd.
Vegagerðin sér enn sem áður alfarið um snjómokstur á eftirfarandi leiðum:
Mokað alla daga:
- Þjóðvegur 1
- Sauðárkróksbraut
- Siglufjarðarvegur frá Sauðárkróksbraut
- Hólavegur frá Siglufjarðarvegi að Hólum
- Þverárfjallsvegur
Mokað sunnudaga, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga:
- Siglufjarðarvegur frá vegi eitt að Sauðárkróksbraut.
Mokað mánudaga, miðvikudaga og föstudaga:
- Skagafjarðarvegur frá vegi eitt að Héraðsdalsvegi.