Nýr umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi tekur til starfa
03.06.2026
Sveinn Þ. Finster Úlfarsson hefur verið ráðinn umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi hjá sveitarfélaginu og hóf störf 1. júní sl.
Sveinn mun sinna umsjón með sorphirðu og þjónustu við íbúa, hafa umsjón með landbúnaðarmálum og samskipti við fjallskilastjórnir. Þá verður það einnig á hans könnu að sinna eftirliti með lausagöngu búfjár, skipulagi refa- og minkaveiða, umsýslu með hunda- og kattahaldi, viðhaldi girðinga og umsjón með landareignum sveitarfélagsins.
Sveitarfélagið býður Svein velkominn til starfa og óskar honum velfarnaðar í sínum störfum.