Fara í efni

Nýr leikskólastjóri við Leikskólann Ársali

19.08.2021
Guðbjörg Halldórsdóttir

Guðbjörg Halldórsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri við leikskólann Ársali á Sauðárkróki. Guðbjörg er með B.Sc. í sálfræði með leikskólakennarafræði sem aukagrein. Hún hefur góða þekkingu og reynslu af störfum í leikskóla. Guðbjörg hefur öðlast góða innsýn í fjölbreytileika leikskólastarfsins og sótt ýmis námskeið þar að lútandi. Hún hefur starfað sem deildarstjóri í afleysingum ásamt því að starfa sem sérkennari. Menntun hennar hefur nýst til stuðnings barna með sérþarfir. Hún þekkir vel uppeldis- og menntunarhlutverk leikskólans og hversu mikilvægt er að viðhalda góðu sambandi við foreldra sem og aðra þjónustu og stofnanir. Þá hefur hún einnig reynslu af störfum með fötluðu fólki og víðtæka reynslu af samskiptum og þjónustu við fólk m.a. í gegnum störf sín sem flugfreyja.

Við bjóðum Guðbjörgu hjartanlega velkomna til starfa og óskum henni velfarnaðar í sínum störfum.