Nýr körfuboltavöllur í Hlíðarhverfi kominn vel á veg
10.06.2026
Framkvæmdum á nýjum körfuboltavelli í Hlíðarhverfi á Sauðárkróki miðar vel áfram. Nú stendur yfir malbikun en það er fyrirtækið Malbikun Akureyrar sem sér um þann hluta verksins. Fyrirtækið Þ. Hansen sá um jarðvinnuna.
Það er síðan Þjónustumiðstöð sveitarfélagsins sem sér um lokafráganginn sem felur í sér uppsetningu á körfum ásamt því að leggja plast á völlinn.
Verkið er komið vel á veg og stefnt er að því að körfuboltavöllurinn verði tilbúinn fyrir verslunarmannahelgina. Vonir standa þó til að hægt verði að ljúka framkvæmdum fyrr.