Fara í efni

Nýr forstöðumaður kominn til starfa

01.06.2017

Nýr forstöðumaður kominn til starfa

 

Nýr forstöðumaður, Ari Jóhann Sigurðsson, hóf störf á heimili fyrir fatlað fólk á Blönduósi í dag. Ari hefur starfað sem forstöðumaður meðferðarheimilisins Háholts undanfarin ár.

Ari Jóhann Sigurðsson er boðinn velkominn til starfa hjá Sveitarfélaginu Skagafirði.

 

Í upphafi árs 2016 var samþykktur samningur um sameiginlegt þjónustusvæði á Norðurlandi vestra um þjónustu við fatlað fólk. Á þjónustusvæðinu er Sveitarfélagið Skagafjörður leiðandi sveitarfélag og veitir fötluðu fólki, sem á lögheimili í aðildarsveitarfélögunum þjónustu. Þjónusta innan svæðisins er veitt á jafnræðisgrundvelli og byggja ákvarðanir um veitingu hennar á mati á þjónustuþörf. Sömu viðmið gilda um þjónustustig á svæðinu öllu. Aðildarsveitarfélögin eru Akrahreppur, Blönduósbær, Húnavatnshreppur, Húnaþing vestra, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagafjörður og Sveitarfélagið Skagaströnd.