Fara í efni

Nýr forstöðumaður á heimili fatlaðs fólks Skúlabraut Blönduósi

20.08.2021
Alma Dögg Guðmundsdóttir

Alma Dögg Guðmundsdóttir þroskaþjálfi hefur verið ráðin forstöðumaður á heimili fatlaðs fólks Skúlabraut Blönduósi.  Alma Dögg er með BA gráðu í þroskaþjálfafræði frá Háskóla Íslands en hefur einnig lokið MSc námi í atferlisfræðum frá University of Kent.  Þá hefur Alma Dögg lokið margvíslegum námskeiðum sem tengjast störfum hennar undanfarin ár. Að loknu námi hefur Alma Dögg starfað sem atferlisfræðingur í geðheilsuteymi Taugaþroskana hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, hefur einnig m.a. starfað hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar sem þroskaþjálfi og atferlisfræðingur.

Við bjóðum Ölmu Dögg hjartanlega velkomna til starfa og óskum henni velfarnaðar í sínum störfum.