Fara í efni

Nýr deildarstjóri Árvistar

30.08.2013
Unnur Magnúsdóttir

 Unnur Magnúsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri Árvistar við Árskóla á Sauðárkróki.

Unnur hefur kennaramenntun frá Curtin University í Ástralíu og hefur starfað sem grunnskólakennari frá árinu 1976.

Hún hefur mikla reynslu sem kennari barna með ólíkan félagslegan og menningarlegan bakgrunn, m.a. starfaði hún lengi sem kennari barna frumbyggja í Ástralíu.

Það er sveitarfélaginu mikill fengur að fá Unni til starfa og hún boðin hjartanlega velkomin til starfa.