Nýir rekstraraðilar taka við Ljósheimum
Nýir rekstraraðilar hafa tekið við rekstri félagsheimilisins Ljósheima og er stefnan hjá þeim að bjóða reglulega upp á skemmtilega viðburði og uppákomur. Þá stendur til að vera með fjölbreytta þjónustu fyrir þau sem bóka húsið undir veislur og aðrar samkomur.
Ljósheimar standa áfram til boða fyrir veislur, fundi og aðra viðburði og vilja nýir rekstraraðilar leggja sig fram um að skapa hlýlega og góða umgjörð fyrir hvert tilefni. Fram undan eru einnig spennandi hugmyndir tengdar aðventunni og því er um að gera að fylgjast vel með. Nánari upplýsingar verða kynntar þegar nær dregur.
Heimasíðu Ljósheima er að finna hér. Einnig er hægt að hafa samband við rekstraraðila í gegnum netfangið ljosheimar26@gmail.com eða í síma 779-6563.
Rekstraraðilar vilja hvetja þá sem áttu bókaðan sal eða húsið til að hafa samband svo hægt sé að staðfesta bókanirnar.