Fara í efni

Ný útgáfa göngukorta

01.09.2017
Nú útgáfa göngukorta

Út er komin ný útgáfa göngukorta yfir svæðið á milli Skagafjarðar og Austur-Húnavatnssýslu. Annars vegar er um að ræða kort yfir Skaga á milli Húnaflóa og Skagafjarðar, og hins vegar kort sem nær yfir svæðið frá Skagafirði til Vatnsdals.

Með kortunum fylgja samtals 93 stuttar leiðarlýsingar á íslensku og ensku, auk umfjöllunar um áhugaverða staði á leiðunum. Kortin eru í mælikvarðanum 1:100.000. Eitt aðaleinkenni þessara korta er vandað hæðarlíkan í náttúrulegum litum og myndræn skygging. Að auki er á kortunum að finna mikinn fjölda örnefna og annarra gagnlegra upplýsinga.

Kortagerð annaðist Hans H. Hansen hjá Fixlanda ehf., hönnun og myndvinnslu annaðist Óli Arnar Brynjarsson hjá Nýprent ehf., ensk þýðing var unnin hjá Þekkingarsetrinu á Blönduósi og prentun var í umsjón Prentsmiðjunnar Odda í Reykjavík. Útgefandi er Sveitarfélagið Skagafjörður í samvinnu við sveitarfélögin í Austur-Húnavatnssýslu, Félag ferðaþjónustunnar í Skagafirði og Ferðamálafélag Austur-Húnavatnssýslu. Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra og Kaupfélag Skagfirðinga styrktu útgáfu kortanna.

Kortin eru komin af stað í dreifingu og verða til sölu víða um land.