Fara í efni

Ný starfsstöð Tónlistarskóla Skagafjarðar á Sauðárkróki

02.09.2016
Tónlistarskóli Skagafjarðar flytur í Árskóla

Starfsstöð Tónlistarskóla Skagafjarðar á Sauðárkróki mun á næstunni flytja úr Borgarflöt 1 og í húsakynni Árskóla.

Undanfarin ár hefur kennsla Tónlistarskóla Skagafjarðar verið samþætt í húsakynnum Varmahlíðarskóla og Grunnskólans austan Vatna. Þetta hefur gefið mjög góða raun á  þessum stöðum og almenn ánægja er meðal nemenda, foreldra og starfsmanna með þessa skipan, enda er hlutfall nemenda í tónlistarnámi mun hærra þar en á Sauðárkróki. Með þessari samvinnu tónlistarskólans og grunnskólanna hefur tekist að gera öflugt starf tónlistarskólans enn betra enda er litið á starfsemi tónlistarskólans sem afar mikilvægan þátt í skólastarfinu á hverju svæði fyrir sig. Framtíðarsýn margra hefur verið sú að slíkt yrði einnig gert á Sauðárkróki. Nú er sá draumur að rætast.

Undanfarnar vikur hefur verið unnið að breytingum í Árskóla svo koma megi tónlistarkennslunni fyrir þar og er nú verið að leggja lokahönd á þær framkvæmdir.

Vonir eru bundnar við að flutningur starfsemi tónlistarskólans á Sauðárkróki í Árskóla verði lyftistöng fyrir tónlistarnám barna og unglinga á staðnum og ýti undir enn metnaðarfyllra starf skólans. Einnig eru bundnar vonir við að samstarf þetta efli enn frekar gott samstarf starfsfólks skólanna.

Í mars s.l. fól fræðslunefnd sviðsstjóra fjölskyldusviðs að gera tillögur um útfærslu og kostnaðargreiningu verksins. Greinargerð og tillögur voru lagðar fyrir fræðslunefnd og byggðarráð í júní og ákvörðun tekin um framkvæmdirnar í kjölfarið.

Á næstu dögum verður flutningurinn endanlega dagsettur.