Fara í efni

Ný heimasíða skíðadeildar Tindastóls

17.02.2015

Skíðadeild TindastólsOpnuð hefur verið ný og glæsileg heimasíða fyrir skíðasvæðið í Tindastóli. Á síðunni er að finna allar helstu upplýsingar um skíðasvæðið og starfsemina sem þar fer fram, auk frétta og yfirlits yfir viðburði sem framundan eru. Ber þar í dag hæst dagskrá vetrarhátíðar sem hefst næstkomandi fimmtudag og við hvetjum fólk til að láta ekki fram hjá sér fara. Slóðin á heimasíðu skíðadeildar er www.tindastoll.is/skidi.