Fara í efni

Niðurstöður íbúakönnunar um sorpmál í dreifbýli Skagafjarðar

11.07.2022

Á föstudaginn lauk íbúakönnun um sorpmál í dreifbýli Skagafjarðar þar sem valið var milli tveggja valkosta. Valið stóð á milli þess að íbúar í dreifbýli Skagafjarðar skili flokkuðu heimilissorpi á móttökustöðvar í sveitarfélaginu eða að heimilissorp verði sótt á öll lögheimili í dreifbýli Skagafjarðar. Þátttökurétt höfðu allir eigendur íbúða og íbúðahúsnæðis með lögheimilisfesti í dreifbýli Skagafjarðar og fór íbúakönnunin fram á www.betraisland.is. 
Kynningarbæklingur um fyrirkomulag sorphirðu ásamt þeim valkostum sem í boði voru var sendur á öll heimili í dreifbýli Skagafjarðar ásamt því að hægt var að afla sér allra upplýsinga á heimasíðu sveitarfélagsins. Einnig voru haldnir íbúafundir í Varmahlíð og Hofsósi og báðum fundum streymt á Facebooksíðu sveitarfélagsins.

Niðurstaða könnunarinnar

Alls voru 671 á kjörskrá og tóku 171 einstaklingar þátt í könnuninni eða um 25%.
Meirihluti þeirra sem tóku þátt völdu að láta sækja heimililssorp á lögheimili í dreifbýli Skagafjarðar, eða um 64%. Um leiðbeinandi könnun var að ræða og mun sveitarstjórn Skagafjarðar í kjölfarið rýna niðurstöðuna og taka ákvörðun um framhaldið. Stefnt er að bjóða út sorphirðu í dreifbýli Skagafjarðar við fyrsta tækifæri en bjóða þarf út á öllu evrópska efnahagssvæðinu.

Tölfræði upplýsingar

Fjöldi á kjörskrá: 671
Fjöldi greiddra atkvæða: 171
Kosningaþátttaka: 25%

Valkostur 1 | íbúar í dreifbýli Skagafjarðar skili flokkuðu heimilissorpi á móttökustöðvar í sveitarfélaginu: 62 atkvæði | Hlutfall 36%
Valkostur 2 | Heimilissorp sótt á öll lögheimili í dreifbýli Skagafjarðar: 109 atkvæði | Hlutfall 64%