Nemendur í GaV komust áfram í Málæði þriðja árið í röð
Unglingastig Grunnskóla austan Vatna tók þátt í verkefnavinnu á vegum Málæðis nú í haust. Lagahöfundurinn og íslenskufræðingurinn Bragi Valdimar Skúlason samdi laglínu og bauðst nemendum um allt land að semja texta við lagið. Nemendur á unglingastigi GaV unnu verkefnið í hópum og skiluðu inn textum.
Verkefnið var tímafrekt og krafðist mikillar þolinmæði og þrautseigju, enda reyndist snúið að láta texta passa við lagið. Lag Braga er rólegt og fallegt og umfjöllunarefni textanna sem sendir voru inn í takt við það. Að þessu sinni fjölluðu textarnir um missi, stríð, slys og áföll. Texti Óskars Bjarna og Moniku Rutar, um aldraðan mann sem misst hefur eiginkonu sína, heillaði dómnefndina og var valinn áfram. Nú hefur Bragi Valdimar fullklárað textann og Salka Sól sungið lagið í stúdíó.
Mikil gleði ríkir í skólanum með árangur nemenda og það verður gaman að heyra lokaútkomuna á laginu, sem frumflutt verður á RÚV á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember í þættinum Málæði.
Vert er að nefna afrakstur góðrar vinnu nemenda og kennara og færir sveitarfélagið þeim innilegar hamingjuóskir. Jafnframt eru Moniku Rut og Óskari Bjarna færðar hamingjuóskir með þennan glæsilega árangur og hreint út sagt gullfallegan texta.
Stjarnan mín skær
Stjarnan mín skær,
ástin mín kær,
ég finn þig enn í hverri stund.
Hjartslættinum,
morgunbollanum,
— og gönguferðunum.
Miðnæturstjarna sem skín.
Saknar þú mín eins og ég sakna þín?
Ég kannast ekki við mig þegar þú ert ekki hér.
(Ég) kann bara'að vera með þér.
Vertu hjá mér.
Dreg andann djúpt,
man brosið þitt svo ljúft.
Ég minnist alls sem þú gafst mér.
Á síðkvöldum
(með) löngum samtölum,
og öllum góðu stundunum.
Miðnæturstjarna sem skín.
Saknar þú mín eins og ég sakna þín?
Ég kannast ekki við mig þegar þú ert ekki hér.
(Ég) kann bara'að vera með þér.
Vertu hjá mér.
Höfundar: Óskar Bjarni og Monika Rut.