Fara í efni

Nemendur Grunnskólans austan Vatna hlutu verðlaun í verkefninu Landsbyggðarvinir

14.02.2017
Frá afhendingu verðlaunanna í Háskólanum í Reykjavík

Nemendur 8. - 10. bekkjar í Grunnskólanum austan Vatna tóku nýlega þátt í verkefni sem ber yfirskriftina Landsbyggðarvinir. Verkefnið miðar að því að nemendur leiti leiða til að efla og styrkja heimabyggð sína með því að leggja fram sínar eigin hugmyndir, tillögur til úrbóta, fylgja þeim eftir og framkvæma.

Tveir nemendur grunnskólans hlutu þriðju verðlaun fyrir verkefni sín um Íþróttamiðstöð á Hólum og á Hofsósi. Inga Sara Eiríksdóttir í 9. bekk og Íris Lilja Jóhannsdóttir í 8. bekk. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í húsakynnum Háskólans í Reykjavík. Formaður dómnefndar var Steinunn Vala Sigfúsdóttir og Unnur Birna Vilhjálmsdóttir verndari Landsbyggðarvina afhenti verðlaunin en nemendur úr Strandabyggð urðu í efstu sætunum.

Spennandi verður að fylgjast með seinni hluta verkefnisins en þá velja nemendur þær hugmyndir sem þykja helst framkvæmanlegar og útfæra nánar.

Inga Sara Eiríksdóttir og Íris Lilja Jóhannsdóttir