Fara í efni

Námsgögn verða nemendum í grunnskólum í Skagafirði þeim að kostnaðarlausu frá og með næsta skólaári

10.08.2017
Námsgögn í grunnskólum Skagafjarðar verða kostnaðarlaus frá og með næsta skólaári

Sveitarfélagið Skagafjörður hefur ákveðið að bjóða nemendum grunnskóla í Skagafirði námsgögn þeim að kostnaðarlausu frá og með skólaárinu 2017.

Með þessari ákvörðun bætist Sveitarfélagið Skagafjörður í hóp þeirra sveitarfélaga sem þegar hafa ákveðið að bjóða nemendum sínum ókeypis námsgögn.