Fara í efni

Næsthæsti styrkur úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til uppbyggingar við Staðarbjargarvík

02.05.2025

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra úthlutaði í vikunni úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2025. Að þessu sinni hlut 28 verkefni styrk úr sjóðnum. Heildarúthlutun er 553,2 milljónir króna og dreifast verkefnin um land allt. Að venju snúa verkefnin að fjölbreyttri uppbyggingu, m.a. á sviði öryggismála, náttúruverndar, innviðauppbyggingar o.fl. Í úthlutuninni að þessu sinni var lögð áhersla á minna sótt svæði og lengingu ferðatímabils. Gæðamat sjóðsins tók mið af þessari áherslu. Af þeim 28 verkefnum sem hlutu styrk eru 10 á Austurlandi og 4 á Vestfjörðum en fæstir erlendir ferðamenn gista á þessum landssvæðum.

Alls bárust 96 umsóknir um styrki að fjárhæð rúmlega 2,2 milljarða króna til verkefna að heildarfjárhæð rúmlega 3 milljarða króna. Næsthæsti einstaki styrkurinn, rúmar 60 milljónir króna, fer til uppbyggingar við Staðarbjargavík í Skagafirði. Markmið verkefnisins er að bæta aðgengi ferðamanna að mikilli náttúrufegurð og jarðmyndunum. Núverandi aðkoma að Staðarbjargavík er frá bílastæðinu við hina fjölsóttu sundlaug á Hofsósi.

Stjórn sjóðsins leggur ríka áherslu á að við framkvæmdir á útsýnisstað verði tryggð áframhaldandi vernd á merkum jarðmyndunum sem þar eru undir, stuðlabergi, og að framkvæmdin og framtíðarnýting staðarins rýri ekki þessar náttúruminjar. Verkefnið er hluti af áfangastaðaáætlun Norðurlands og fellur vel að markmiðum sjóðsins um bætt aðgengi og öryggi.

Nánar um úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2025/04/30/-Atvinnuvegaradherra-uthlutar-ur-Framkvaemdasjodi-ferdamannastada/

Hér má sjá myndband sem sýnir nánari útfærslu verkefnisins